Klónun

Soldið gaman. Við buðum gamla fólkinu í bröns í hádeginu. Mætt voru mamma, Steini afi, ammma Ásta, Sigga frænka og Ásta systir. Það er svo gaman að tala við eldri kynslóðina. Þau eru svo full af visku og ekki langt í húmorin þó þau fari ósköp vel með hann, eru ekki að flíka honum en samt er mjög grunnt á hann. Við ræddum um helstu mál líðand stundar og upp kom nýja biblíuþýðingin. Og fyndið hvað þau höfðu pælt. Ef Jesús var eingetin var Hann þá ekki bara klónaður. Þetta orð var náttúrulega ekki til á dögum biblíuskrifara en er til núna og ekki hef ég litið þessa nýju þýðingu en rak í rogastans þegar þessi umræða var komin á þetta plan. Hvílík viska. Auðvitað var Hann bara kónaður þó svo að ég sé ekki að líkja Honum við rolluna Dolly sem var líka kónuð. Fórum svo í göngutúr í Elliðaárdalinn með Ástu systir og Agli sem var ekki síður gaman. Gaukur

Flott

Við Óli Helga rúlluðum upp brúðkaupinu í gær. Það er svo skrítið hvað hann Óli vinur minn er klár og góður fagmaður. Það er hrein unun að vinna með þessum dreng. Fagmennskan er í puttunum og áhuginnn á réttum stað. Þó svo hann sé húmoristi og gaman þess vegna að vinna með honum þá er hitt bara bónus. Ég kem alltaf ríkari eftir veislur sem ég hef tekið með honum Óla. Svo reyni ég að miðla þesari visku sem ég hef fangað. Brúðkaupið samastóð af danskri- og íslenskri fjölskyldu og eins og margir vita er þetta fínn og flottur kokteill. Veislan byrjaði snemmma og var lokið óvenju snemmma hjá okkur fagmönnnunum en vonandi að fólkið hafi skemmtsér vel og fengið næturmat og það sem bjóða skal með .Gaukur

og svo..

Ég hef ekki litið á síðuna svo lengi. Haft nóg að spá annað en vgna mikils þrístings stelst ég hér inn. Það er svo margt í pípunum. Ég er búinn að segja upp í Langó og stefni á önnur mið. Mjög spennandi tímar framundan. Ekki svo að segja að dvöl mín í Langó hafi ekki verið spennandi. En fullt í pípunum. Brúðkaupsveisla á morgun og undirbúningur á fullu og þá kemst helst ekkert annað að.Smile Smile

Myndir!

Er búinn að vera í allt kvöld að reyna og reyna að koma myndum inn á bloggið og viti menn með smá nappi frá Steinunni tókst það og ég get lagst sæll í rúmið.:))

Auðvitað!

Já auðvitað verð ég að setja inn mynd af mér. Ég hef bara haft svo mikið að gera undanfarna daga að ég hef bara ekki haft tíma í eitt eða neitt og sýnist mér ekki vera nein breyting þar á.

Engin svörun:(

Það er ótrúlegt en veislan er gengin um garð án dætra og án þriðju handarr og nokkurarr svörunarr.Er maður orðinn bara soddan lóner eða hvað? Ja ég bara spyr sem ekki veit? Eða??Eða!Eða?  'Okei, skil...

Þriðja höndin

Mér verður nú bara orða.... hvernig er það sagt og hvð er hægt að segja. Annars bráð vantar mig dæturnar heim. Það var að detta inn ein veisla á morgun og vantar þriðju hendina.

Svo er bara að nota þetta.

Það er svosem ekki til mikils að vera með bloggsíðu ef ekkert er skrifað en svona er þetta nú að þegar ég er nú kominn með eithvð eins og allir aðrir er ekki þar með sagt að ég noti hlutina eins og allir aðrir. Samt gaman að hafa þennan möguleika.

Búinn að vera

Búinn að vera einn tíma og fengið eina heimsókn. Takk Rósa Birgis!

Hér kem ég.

Smile Síðasta vígið er fallið. Ég er byrjaður að blogga!

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband